Bainda Amara, 25 ára. Hún var meðal þeirra sem handgerði lyklakippurnar en henni hefur tekist að fjármagna háskólanám sitt með launum sem hún fékk fyrir vinnuna sína.

Réttindi barna varða okkur öll – lyklakippur til stuðnings Barnaheill

Í dag, fimmtudaginn 2. maí, hefst hin árlega Vorsöfnun Barnaheilla með sölu á lyklakippum sem eru hannaðar og framleiddar af handverksfólki í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne. Allur ágóði sölunnar rennur til verkefna Barnaheilla sem snúa að vernd gegn ofbeldi á börnum. „Söfnunin stendur yfir í fimm daga frá deginum í dag og til mánudagsins 6. maí.  Hægt er að kaupa lyklakippurnar um land allt hjá sölufólki og einnig inni á heimasíðu okkar Barnaheill.is,“ segir í tilkynningu.

Réttindi barna varða okkur öll – lyklakippur til stuðnings Barnaheill - Skessuhorn