Ómar Líndal tannlæknir og Kristín hafa starfað saman í tæp tólf ár. Ljósm. vaks

Fagnar 50 ára starfsafmæli

Í maí árið 1974 hóf Kristín Guðjónsdóttir störf hjá Ingjaldi Bogasyni tannlækni á stofu hans sem staðsett var á neðri hæð á Háholti 11 á Akranesi. Kristín hafði verið í vist hjá Ingjaldi og konu hans Ingibjörgu frá 14 ára aldri í barnagæslu á sumrin og byrjaði 17 ára að vinna hjá Ingjaldi. Árið 1980 flutti stofan á Kirkjubraut 40 þar sem Lárus Arnar Pétursson var kominn inn sem tannlæknir auk Ingjalds og var stofan þar til húsa til ársins 1991 þegar starfsemin var flutt á Laugarbraut 11 þar sem hún er enn í dag. Ingjaldur seldi Ómari Líndal Marteinssyni tannlæknastofuna árið 2013 og hefur Ómar rekið hana síðan undir nafninu Tveir gómar. Kristín hefur því starfað í 50 ár á þremur tannlæknastofum á Akranesi nánast alla sína starfsævi og geri aðrir betur.