
Aðalsteinn settur í embætti ráðuneytisstjóra
Hólmarinn Aðalsteinn Þorsteinsson hefur verið settur ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu frá 1. maí til og með 31. ágúst 2024. Það gerist eftir að Hermann Sæmundsson flyst í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins, að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra. Aðalsteinn hefur starfað sem skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála frá því í júní 2022. Þá hefur hann starfað sem forstjóri Byggðastofnunar frá árinu 2002. Aðalsteinn starfaði einnig tímabundið sem forstjóri Þjóðskrár Íslands árið 2022.