Stykkishólmur. Ljósm. sá

Sveitarfélagið Stykkishólmur gert upp með 40 milljóna króna tapi 2023

Ársreikningur Sveitarfélagsins Stykkishólms var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 24. apríl síðastliðinn. Þar var jafnframt um að ræða fyrsta ársreikning sveitarfélagsins frá stofnun þess á árinu 2022 sem nær yfir heilt ár eftir sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar. „Endurspeglar ársreikningurinn að reksturinn sé að ná jafnvægi og er að styrkjast til muna frá fyrra ári,“ segir í frétt á vef sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið Stykkishólmur gert upp með 40 milljóna króna tapi 2023 - Skessuhorn