Borgarbyggð mun leiða starf Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Um síðustu áramót fengu sveitarfélögin Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit undanþágu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu til að starfrækja barnaverndarþjónustu. Það var gert í kjölfar þess að á síðasta ári urðu breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002 sem fólu m.a. í sér að barnaverndarnefndir voru lagðar niður en í þeirra stað tóku til starfa Umdæmisráð. Einnig voru sett inn skilyrði um lágmarksíbúafjölda í hverju sveitarfélagi, eða samlagssvæði, þ.e. að hver barnaverndarþjónusta þyrfti að telja a.m.k. 6000 íbúa. Því lagði ráðuneytið ríka áhersla á að minni sveitarfélög myndu standa saman að sameiginlegri barnaverndarþjónustu.

Borgarbyggð mun leiða starf Barnaverndarþjónustu Vesturlands - Skessuhorn