Björgunarsveitarfólk í prufutúr á nýja bátnum. Ljósm. BA

Björgunarfélagið endurnýjar harðbotna slöngubát

Björgunarfélagi Akraness bauðst á síðasta ári að kaupa nýuppgerðan björgunarbát frá bresku björgunarsamtökunum (RNLI) og var því boði tekið. Eldri harðbotna bátur félagsins, Margrét Guðbrandsdóttir, var orðinn lúinn og þarfnaðist því endurnýjunar. „Þó að ekki sé um nýjan bát að ræða er mest allur búnaður nýr; mótorar, stjórn- og leiðsögutæki og annar nauðsynlegur búnaður sem notaður er við leit og björgun,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Björgunarfélagið endurnýjar harðbotna slöngubát - Skessuhorn