Ærslagangurinn byrjaður í salnum. Ljósmyndir: tfk

Nemendafélagið bauð upp á hoppandi fjör

Síðasta vetrardag bauð nemendafélag FSN börnum í Grundarfirði að koma og hoppa í stóra sal skólans. Þar var búið að blása upp tvo stóra hoppukastala til að ærslast í. Fjöldi gesta mætti og hoppuðu frá sér allt vit í um tvær klukkustundir en allur ágóðinn af verkefninu rann í sjóð félagsins. Það voru sveittir og sælir krakkar sem gengu út úr skólanum að hoppinu loknu.

Nemendafélagið bauð upp á hoppandi fjör - Skessuhorn