
Skagamenn fengu Keflavík í Mjólkurbikarnum
Dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í hádeginu í dag og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ. Eins og alltaf var mikil spenna í loftinu áður en athöfnin hófst og voru fulltrúar liðanna mættir til að vera viðstaddir dráttinn. Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, tók fyrstur til máls og kynnti inn þau Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ragnheiði Elíasdóttur, starfsmann KSÍ, sem sáu um að draga.
Skagamenn fengu útileik á móti Lengjudeildarliði Keflavíkur sem sló Bestu deildar lið Breiðabliks óvænt út úr keppninni og má búast við hörkuleik.
Hinar viðureignirnar eru eftirfarandi: Fram-ÍH, KA-Vestri, Fylkir-HK, Stjarnan-KR, Afturelding-Valur, Fjölnir-Þór Akureyri og Grindavík-Víkingur R.
16-liða úrslitin verða leikin fimmtudaginn 16. maí og föstudaginn 17. maí.