
Gleðilegt sumar!
Sumar heilsar okkur í dag. Þessir feðgar tóku forskot á sæluna síðastliðinn sunnudag sem segja má að hafi verið fyrsti góði vordagurinn í veðrinu. Þeir voru í baðlauginni Guðlaugu við Langasand á Akranesi og svo var ótrúlega spennandi að kæla sig aðeins og vaða út í brimið og láta öldurnar elta sig.