Vaskir drengir úr UMFR á körfuknattleiksmóti. Ljósm: Helgi Eyleifur Þorvaldsson.

Mikil gróska í íþróttastarfi Ungmennafélags Reykdæla

Frá síðasta hausti og nú til vors hefur Ungmennafélag Reykdæla í Borgarfirði boðið upp á mjög fjölbreytta íþróttadagskrá fyrir unga jafnt sem eldri. Boðið var upp á sund fyrir fjögurra til fimm ára börn en einnig var boðið upp á sundnámskeið fyrir eldri hóp sem hófst um miðjan september og stóð til nóvember loka. Fimleikar hafa verið í boði í fyrsta sinn hjá félaginu í vetur fyrir aldurinn 4-10 ára í samstarfi við fimleikadeild ÍA. Mikill áhugi hefur verið og var íþróttahúsið á Kleppjárnsreykjum fullsetið, þar sem eingöngu var hægt að hafa 18 iðkendur í einum hópi. Alls voru 48 iðkendur í fimleikahópnum en þjálfarar voru þær Agnes Sveinbjörnsdóttir og Sólrún Lilja Finnbogadóttir, sem æfa og keppa með meistaraflokki ÍA í fimleikum.

Mikil gróska í íþróttastarfi Ungmennafélags Reykdæla - Skessuhorn