Frá vinstri: Lóa Arianna Paredes Casanova nemandi í Heiðarskóla, Róbert Orri Viðarsson nemandi Auðarskóla, Georg Guðnason nemandi Grunnskóla Borgarfjarðar, Heiðrún Inga Jóngeirsdóttir nemandi Grunnskóla Borgarness, Valgarður Orri Eiríksson nemandi Heiðarskóla, Bryndís Mjöll Guðmundsdóttir nemandi Auðarskóla, Helga Laufey Hermannsdóttir nemandi Grunnskóla Borgarfjarðar, Lísa Camila Valencio nemandi Grunnskóla Borgarness og Reynir Antonio Þrastarson nemandi Grunnskóla Borgarness.

Lóa Arianna sigraði í Stóru upplestrarkeppninni

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í Dalabúð í Búðardal síðasta þriðjudag. Keppnin var lokahátið samstarfsskólanna fjögurra á Vesturlandi sem eru Auðarskóli í Búðardal, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskóli Borgarness og Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit.