
Frá verðlauna afhendingu í Vestfjarðavíkingnum í Stykkishólmi sumarið 2022. Ljósm. úr safni/ sá
Víkingurinn 2024 verður á Vesturlandi
Á fundi menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar 9. apríl síðastliðinn var kynning og síðan umræður með Magnúsi Ver Magnússyni frá Félagi kraftamanna um verkefnið Víkingurinn 2024. Magnús Ver sat fundinn undir þessum dagskrárlið og þakkaði nefndin honum fyrir góða kynningu um verkefnið Víkingurinn 2024, keppni sterkustu manna landsins, sem fara mun fram á Vesturlandi dagana 28.-30. júní í sumar.