
Fulltrúar þeirra styrkhafa sem mættir voru ásamt Lindu Guðmundsdóttur verkefnastjóra (lengst til vinstri). Ljósm. mm
Þriðja úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs
Síðdegis í gær fór fram þriðja úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs við athöfn í Sælureitnum Árbliki. Það var Linda Guðmundsdóttir verkefnisstjóri DalaAuðs sem stýrði athöfninni. Fram kom hjá henni að alls hafi 21 umsókn borist um styrki að þessu sinni og hlutu 18 verkefni styrk. Til úthlutunar voru 18.350.000 kr. sem er um 50% aukning frá síðasta ári og skýrist af hækkuðu framlagi frá Byggðastofnun við verkefnið. Heildarfjárhæð styrkumsókna nam 25.350.695 kr en heildarkostnaður þeirra verkefna er 55,2 milljónir króna. Að þessu sinni sóttu sex konur um styrki, tólf karlmenn og þrjú verkefni hafa bæði karlmenn og konur sem hvatamenn og/eða umsækjendur.