„Þeir fiska sem róa“. Ljósm. úr safni úr Skorradal.

Skorradalshreppur hástökkvari í íbúafjölgun

Íbúar á Vesturlandi voru 18.170 þann 1. apríl síðastliðinn og hafði fjölgað um 129 frá 1. desember 2023, en það jafngildir 0,7% fjölgun á tímabilinu, sú næstmesta á landsvísu. Íbúar eru sem fyrr flestir á Akranesi eða 8.301 og var fjölgun 0,9% á fimm mánaða tímabili. Hlutfallslega mest fjölgun á landsvísu (10,2%) var þó í Skorradalshreppi þar sem íbúum fjölgaði um sex og eru nú 65. Íbúum í þremur sveitarfélögum á Vesturlandi fækkaði á tímabilinu, þ.e. í Snæfellsbæ um 13 (0,8%), Eyja- og Miklaholtshreppi um tvo (1,6%) og í Grundarfirði fækkaði um þrjá (0,3%). Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 19 en fjölgaði eða stóð í stað í 45 sveitarfélögum.