
Gengið til kirkju. Ljósmyndir: Sumarliði
Presta- og djáknastefnan fer nú fram í Stykkishólmi
Nú stendur yfir árleg Presta- og djáknastefna sem að þessu sinni er haldin í Stykkishólmi. Þemað að þessu sinni er: „Kirkjan og handbókin“. Dagskráin hófst í gær með messu í Stykkishólmskirkju þar sem sr. Sveinn Valgeirsson sóknarprestur í Dómkirkjunni í Reykjavík prédikaði. Eftir messuna setti biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir stefnuna og um kvöldið var móttaka í Vatnasafninu á vegum Sveitarfélagsins Stykkishólms.