Mældist á 140 km hraða þar sem hámarkshraði er 90

Í liðinni viku voru afskipti höfð af um 40 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 140 km hraða á klst. þar sem hámarkshraði er 90 km. Eitthvað var um símanotkun ökumanna við akstur og einnig reyndust tveir ökumenn sviptir ökuréttindum er lögregla hafði af þeim afskipti.

Mældist á 140 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 - Skessuhorn