
Askja Vesturlandi opnar á laugardaginn
Bílaumboðið Askja opnar dyr sínar fyrir íbúum Vesturlands laugardaginn 20. apríl. „Opið verður frá kl. 12-16, þar sem glæsilegir nýir bílar frá Mercedes-Benz, Smart, Kia og Honda verða til sýnis en einnig verður frábært úrval af notuðum bílum á svæðinu,“ segir í tilkynningu.
Askja Vesturlandi er nýr sölu- og þjónustuaðili og er til húsa á Innnesvegi 1 á Akranesi, þar sem Bílver var síðast til húsa. Heitt verður á könnunni og léttar veitingar í boði.