Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. úr safni/arg

Samið um byggingu íþróttahúss á Heiðarborg

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar síðastliðinn fimmtudag var farið yfir tilboð og samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda um byggingu nýs íþróttahúss á Heiðarborg. Fyrirvari var þó gerður um könnun á hæfi bjóðanda í samræmi við kröfur útboðs. Alls nemur kostnaðaráætlun 826 milljónum króna. Fyrirtækið sem bauð lægst var K16 ehf. Tilboð þess hljóðaði upp á 866,8 milljónir króna og er því 4,7% yfir kostnaðaráætlun. Fimm önnur tilboð bárust og voru þau frá 105,2% til 120,8% yfir kostnaðaráætlun.

Samið um byggingu íþróttahúss á Heiðarborg - Skessuhorn