Salmonella í kjúklingi frá Matfugli

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf. vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

Vöruheiti: Ali, Bónus, FK

Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ

Lotunúmer: 011-24-10-3-64 (heill kjúklingur, bringur, lundir, lærakjöt, bitar, kryddlegnar bringur), pökkunardagur 09.04.2024 - 11.04.2024

Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Hagkaup

„Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru eru hvattir til að neyta hennar ekki, farga eða skila til viðkomandi verslunar eða til Matfugls efh, Völuteigi 2, Mosfellsbæ,“ segir í tilkynningu.

Salmonella í kjúklingi frá Matfugli - Skessuhorn