
Kallað eftir tilnefningum til foreldraverðlauna
Opið er fyrir tilnefningar til Foreldraverðlaunanna Heimilis og skóla 2024. Foreldraverðlaunin eru veitt fyrir öflugt foreldrastarf eða verkefni sem sérstaklega stuðla að góðu samstarfi heimila og skóla. Einnig er hægt að tilnefna einstaklinga sem Dugnaðarforka Heimilis og skóla.