
Verðlaunahafar í þriðja flokki. Ljósm. iss
Grímutölt Borgfirðings fór fram á laugardaginn
Mikið var um flott tilþrif og glæsilega búninga þegar grímutölt hestamannafélagsins Borgfirðings fór fram í Faxaborg á laugardaginn. Veitt voru verðlaun fyrir bestu búningana í eldri og yngri flokkum. Í yngri flokkum var það hún Svandís Svava sem var Lína Langsokkur sem hlaut búningaverðlaun og í eldra flokkum var það Björg María Þórsdóttir, en hún var fjósakona. Hér fyrir neðan eru svo úrslit úr öllum flokkum.