
Frábært veður og góð stemning. Ljósmyndir: tfk
Góð helgi að baki í skíðabrekkunum
Það er búið að vera mikið fjör síðustu daga og vikur á Skíðasvæði Snæfellsness í Grundarfirði. Mikill snjór er búinn að vera, þó að vorið virðist vera að stinga niður fæti sunnan megin á Snæfellsnesinu. Það hefur verið kalt en ágætis veður og snjórinn því verið um kjurt. Um liðna helgi var stemningin góð í brekkunum. Sólin skein yfir fjallgarðinum og skíðaiðkendur gátu rennt sér undir dynjandi tónlist. Á sunnudeginum var svo búið að setja upp grill þar sem fólk gat komið með pylsur og hent á grillið þar sem opið var framyfir kvöldmatartíma. Það þarf að fara ansi mörg ár aftur í tímann til að finna svona marga opnunardaga í fjallinu eins og í ár.