Skallagrímsmenn gerðu góða ferð norður í fyrsta leik. Ljósm. glh

Sterkur sigur Skallagríms á Þór

Þór Akureyri og Skallagrímur mættust í úrslitakeppni fyrstu deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Höllinni á Akureyri. Um var að ræða fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum og þarf þrjá sigra til að komast áfram í undanúrslit. Það varð fljótlega ljóst að það var mikið undir í leiknum og ekkert gefið eftir. Um miðbik fyrsta leikhluta var staðan jöfn, 8:8, en þá náðu Skallarnir góðum kafla og voru með sjö stiga forskot þegar tvær mínútur voru eftir, 12:19. Þórsarar tóku þá aðeins við sér og náðu að minnka muninn niður í þrjú stig, staðan 22:25.

Sterkur sigur Skallagríms á Þór - Skessuhorn