
Ráðhús Hvalfjarðarsveitar í Melahverfi. Ljósm. mm
Rekstrarniðurstaða Hvalfjarðarsveitar jákvæð um 500 milljónir á síðasta ári
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar 27. mars sl. var ársreikningur fyrir árið 2023 lagður fram til seinni umræðu. Í fundargerð kemur fram að rekstrartekjur sveitarfélagsins námu rúmum 1.429,8 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu rekstrartekjur A hluta rúmum 1.413 mkr.