
Fjölmennt á íbúafundi vegna skólamála í Varmalandi
Íbúar í Borgarfirði boðuðu til fundar í félagsheimilinu Þinghamri í gær til að ræða skólamál á Varmalandi í Stafholtstungum, en mikill hiti hefur myndast vegna ákvörðunar sveitarstjórnar Borgarbyggðar um að færa unglinga- og miðstig Grunnskóla Borgarfjarðar í Varmalandi yfir á starfsstöð skólans á Kleppjárnsreykjum og/eða í Borgarnes frá og með næsta hausti. Þess má geta í þessu sambandi að fyrirhugað er að flytja Leikskólann Hraunborg sem verið hefur fram að þessu á Bifröst, að Varmalandi. Um það ríkir sátt enda felst í því uppbygging í leikskólastarfinu. Sama má segja um flutning unglingastigsins sem er nokkuð fámennt. En flutningur miðstigsins er umdeildur, þ.e. barna í 5. til 7. bekk.
Meirihluti sveitarstjórnar mætti ekki – ákvörðun þegar tekin
Hátt í sjötíu manns mættu á fundinn sem stóð yfir í um tvo klukkutíma. Fram kom þar að meirihluti sveitarstjórnar hefði afþakkað boð um að mæta þar sem ekki þótti ástæða til að ræða málefnið frekar, ákvörðun lægi nú þegar fyrir. Það er Framsóknarflokkurinn sem myndar fimm manna meirihluta í sveitarstjórn Borgarbyggðar, en í minnihluta eru fjórir fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna og mættu þeir allir á fundinn.
Æskilegt að bíða
Til fundarins var eins og áður boðað vegna ákvörðunar sveitarstjórnar um flutning miðstigsins. Verið er að byggja nýjan grunnskóla á Kleppjárnsreykjum. Þar standa yfir framkvæmdir við nýbygginguna og verða nemendur því fyrst um sinn í bráðabirgðaaðstöðu. Það er ný ákvörðun sem liggur nú fyrir af hendi byggðaráðs um að flytja miðstigið og það strax næsta haust og er hún í andstæðu við álit fræðslunefndar sveitarfélagsins um málið, en hún vildi vinna það í samráði við foreldra. Sama skoðun kom fram á fundi með íbúum sem haldinn var fyrir stuttu þar sem lögð var áhersla á að bíða með flutninginn þar til byggingin á Kleppjárnsreykjum væri lengra á veg komin. Var það ítrekað á fundinum í gær að foreldrum þykir óþarfi að færa þetta unga nemendur yfir í óklárað húsnæði á þessum tímapunkti; æskilegra væri að leyfa framkvæmdum að eiga sér stað áður en miðstigið verði fært yfir. Einnig hafa komið fram þau sjónarmið að fyrir liggi mikill og góður undirbúningur á Varmalandi vegna móttöku barna flóttamanna frá Bifröst. Betra hefði verið að gefa því starfi meiri tíma til að þróast á Varmalandi.
Úkraínskt flóttafólk mætti vel
Á fundinn í gær mættu auk sveitarstjórnarfólksins kennarar og stjórnendur frá Grunnskóla Borgarfjarðar sem er með aðsetur á þremur stöðum í Borgarfirði, á Hvanneyri, Varmalandi og Kleppjárnsreykjum. Einnig sátu fundinn foreldrar og velunnarar skólanna í Varmalandi og á Kleppjárnsreykjum. Úkraínskt flóttafólk frá Bifröst mætti einnig vel, bæði sem foreldrar og þeir sem starfa sem kennarar á Varmalandi.
Um klukkutími í skólabíl
Greinilegt var að mikil óánægja ríkir meðal íbúa um þær aðgerðir sem nú liggja fyrir, ekki síst tímasetningu þeirra. En einnig kom fram að foreldrar hafa áhyggjur af ungum börnum sem þurfa að sitja lengi í skólabíl. Nú þegar þurfa börn á miðstigi og unglingastigi úr Norðurárdal að sitja lengst í tæplega klukkutíma í skólabíl og munu nú að óbreyttu þurfa að fara í Borgarnes eða að Kleppjárnsreykjum í skóla.