
Frá umræðum á einum fundinum. Ljósm. aðsend
Breiðafjörðurinn er einstakur
„Leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar“ var yfirskrift þriggja upplýsinga- og umræðufunda sem haldnir voru að undanförnu vegna verkefnis um framtíð Breiðafjarðar. Þriðji og síðasti fundurinn var haldinn á Birkimel á Barðaströnd þriðjudaginn 26. mars, en áður voru sambærilegir fundir haldnir að Laugum í Sælingsdal og í Stykkishólmi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) greina frá þessu.