
Bjarni Þór við málverkið sem nú er hægt að bjóða í. Ljósm. aðsend
Hægt að bjóða í málverk til stuðnings átaksverkefni – er til sýnis í dag
Bjarni Þór Bjarnason listmálari er búinn að mála mynd fyrir Miðbæjarsamtökin Akratorg sem seld verður hæstbjóðanda. „Það sem fæst fyrir myndina fer í að greiða kostnað við átakið Fyrsta hjálpa – Ráðhús á Akratorg. Miðbæjarsamtökin og Ásta gallerísstjóri verða við Bónus á Akranesi í dag frá kl. 13-15 og sýna myndina og safna undirskriftum til stuðnings átakinu. Tilgangur samtakanna er að vernda, efla og byggja upp gamla miðbæinn fyrir alla Akurnesinga með öllum tiltækum ráðum,“ segir í tilkynningu. Tilboð í málverk Bjarna sendist á: akratorg@gmail.com