Gul viðvörun fyrir norðan- og austanvert landið á páskadag

Um páskahelgina eru margir á faraldsfæti, bæði erlendis en einnig innanlands. Margir fóru t.d. í skíðaferð á Norðurland og aðrir á tónlistarveisluna Aldrei fór ég suður sem nú stendur yfir á Ísafirði. Þeir sem hugðu á heimferð þaðan á morgun þurfa að breyta áætlunum sínum. Á morgun páskadag er gul viðvörun fyrir allt norðan- og austanvert landið. Allt frá Ströndum í vestri og réttsælis um landið til suðausturlands er í gildi viðvörun frá því klukkan 6 í fyrramálið og til miðnættis. Það verður norðaustan 13-18 m/s og snjókoma og sumsstaðar enn hvassara. Búast má við talsverðri snjókomu með skafrenningi, lélegu skyggni og ófærð á fjallvegum, t.d. Öxnadalsheiði.

Gul viðvörun fyrir norðan- og austanvert landið á páskadag - Skessuhorn