
Dilkaslátrun í gangi. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Umdeilt frumvarp heimilar samráð afurðastöðva
Frumvarp um breytingar á búvörulögum var samþykkt eftir þriðju umræðu á Alþingi síðastliðinn fimmtudag, en minnihluti þingmanna, eða 26 þeirra, greiddu breytingunum atkvæði og 19 voru á móti. 16 þingmenn voru fjarverandi úr þingsal. Það var meirihluti atvinnuveganefndar sem lagði fram umdeildar breytingar á frumvarpinu, undir forystu Þórarins Inga Péturssonar formanns nefndarinnar og eina bóndans sem nú situr á Alþingi. Frumvarp þetta hlaut afgreiðslu þrátt fyrir einarðar óskir um frestun atkvæðagreiðslu frá stjórnarandstöðunni og viðvaranir frá ASÍ, Neytendasamtökunum og fleiri hagsmunasamtökum.