
Páskahænur eru stofn sem lítið hefur heyrst af
Hér á landi eru til nokkrir stofnar af hænum, sennilega nokkuð fleiri en almenn vitneskja er um. Algengastar eru ítalskar hvítar hænur, en einnig er töluvert um hænur af íslenska stofninum, marglitar og fallegar. Nýverið heyrði blaðamaður í fyrsta skipti um hænur af stofni sem nefnist páskahænur, Easter egger hænur. Þær hafa þó verið til hér á landi frá því snemma á öldinni, en ekki mikið farið fyrir fréttum af þeim. Páskahænur eru í ýmsum litum og verpa auk þess eggjum í nokkrum litum; grænum, rauðbrúnum, bláleitum og svo framvegis, ekki ólíkt pastellitum. Ýmsir nýir stofnar hænsna hafa skotið hér upp kollinum hér á landi og líkleg skýring sú að auðvelt er að flytja inn frjóvguð egg og unga úr þeim. Til er Facebook síða fyrir Páska hænur og nefnist hús Easter egger hænur. Þar er hægt að finna ýmsan fróðleik um hænurnar og þar miðla ræktendur fróðleik sín á milli.