Stoltir þátttakendur í barnaflokki. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson

Keppt í tvígangi á götuleikum Dreyra

Aðrir götuleikar hestamannafélagsins Dreyra á Akranesi voru haldnir 14. mars í reiðhöllinni Æðarodda. Að þessu sinni var keppt í tvígangi, þar sem keppendur sýndu tölt og brokk. Á fyrstu götuleikunum 15. febrúar var keppt í tölti; hægu og fegurðar. Venju samkvæmt var frábær þátttaka keppenda og allir höfðu gaman. Áhorfendabekkirnir voru sömuleiðis þétt setnir og má það eflaust þakka hinum rómuðu formannsvöfflum með kaffi og kakói.