
Stafrænar lausnir innleiddar
Um miðjan mars tók sveitarfélagið Grundarfjörður formlega í notkun hugbúnaðinn OneLandRobot. Umsóknir um byggingaráform og byggingarleyfi eru því nú komnar á rafrænt form í gegnum íbúagátt Grundarfjarðarbæjar og er þannig komið á rafrænum samskiptum á milli bæjarfélagsins og umsækjanda, hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara.