Hluti aflans kominn á bryggjuna í Grundarfirði. Ljósm. tfk

Metafli hjá Þórsnesi SH 109 – Myndir

Þórsnes SH 109 frá Stykkishólmi kom til hafnar í Grundarfirði síðastliðið miðvikudagskvöld. Skipið hafði verið við veiðar suður af Krýsuvíkurbjargi og voru aflabrögð hreint með besta móti. Þórsnes er á netaveiðum og eftir eina lögn voru lestar skipsins orðnar fullar svo að halda þurfti til hafnar. Túrinn tók ekki nema 23 klukkustundir og aflinn um það bil 116 tonn af slægðum fiski sem einhverjir telja að hljóti að vera einhvers konar Íslandsmet.

Metafli hjá Þórsnesi SH 109 - Myndir - Skessuhorn