
Landbúnaðarverðlaunin að Stóru Mörk undir Eyjafjöllum
Landbúnaðarverðlaunin fyrir árið 2024 voru afhent á Búnaðarþingi sem hófst í vikunni. Það var Katrín Jakobsdóttir starfandi matvælaráðherra sem afhenti hjónunum Aðalbjörgu Ásgeirsdóttur og Eyvindi Ágústssyni að Stóru-Mörk verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur við innleiðingu loftslagsvænna búskaparhátta. Stóra-Mörk er landnámsjörð sem getið er um í Njálssögu og er nyrsti bær Eyjafjalla. Þar er í dag þríbýlt og hefur sama ætt stundað þar hefðbundinn blandaðan búskap allt frá 1865. Í Stóru-Mörk er bú með nautgripi, bæði til mjólkur- og kjötframleiðslu en einnig með sauðfé og einnig er þar rekin ferðaþjónusta. Aðalbjörg og Eyvindur hafa verið þátttakendur í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður frá árinu 2020 og hafa á þeim tíma náð miklum árangri í búrekstrinum.