Kristín Birta Ólafsdóttir í keppnisdressinu. Ljósm. Kokkalandsliðið

Kristín Birta er ein af hæfileikaríkustu kokkum landsins

Borgnesingurinn Kristín Birta Ólafsdóttir er þessa dagana að keppa með kokkalandsliði Íslands. Hún var í hópnum þegar Ísland náði 3. sæti á Ólympíuleikum í matreiðslu í Stuttgart í byrjun febrúar. „Ég var ekki inn í búrinu þá, en ég var varamaður. Við í liðinu erum öll alltaf saman í frágangi en mitt hlutverk sem liðsmaður utan búrs var að undirbúa allt hráefni fyrir æfingar og keppni, og vigta hráefni. Í raun undirbúa allt sem má undirbúa fyrir fram. Á æfingum var ég í salnum að útskýra réttina okkar fyrir fólki og svo framvegis,“ segir Kristín þegar blaðamaður Skessuhorns náði tali af henni.

Kristín Birta er ein af hæfileikaríkustu kokkum landsins - Skessuhorn