
Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni
Gul viðvörun fyrir sunnudagsnótt og út mánudag
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun sem taka á gildi klukkan 4 aðfararnótt sunnudags, og gilda út mánudag. Gildir hún fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland vestra. „Gengur í norðaustan 15-23 m/s með snjókomu á Snæfellsnesi. Búast má við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Versnandi aksturskilyrði á mánudag.“