
Rafmagnsmöstur á Síldarmannagötum milli Skorradals og Hvalfjarðar. Ljósm: hig
Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2023
Byggðastofnun, í samstarfi við Orkustofnun, hefur gefið út skýrslu um kostnað á ársgrundvelli, við raforkunotkun og húshitun á sambærilegri fasteign á flestum þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350 rúmmetrar. Almenn raforkunotkun er sú raforka sem er notuð í annað en að hita upp húsnæði, svo sem ljós og heimilistæki, en miðað er við 4.500 kWst í almennri rafmagnsnotkun og 28.400 kWst við húshitun án varmadælu en 14.200 kWst með varmadælu.