
Meðlimir hljómsveitarinnar Jónfrí. Ljósm. aðsend
Jónfrí að gefa út sína fyrstu plötu
Á morgun, fimmtudag, kemur út plata hljómsveitarinnar Jónfrí sem nefnist „Draumur um Bronco.“ Þetta er fyrsta plata sveitarinnar og segir í tilkynningu að þetta sé kærulaust hversdagspopp um hina eilífu leit að réttu stemningunni. Platan kemur út bæði á vínyl og streymisveitum og inniheldur átta dægurlög. Jónfrí er hliðarsjálf Skagamannsins Jóns Frímannssonar, sem semur lög og texta, syngur og spilar á gítar. Einnig skipa sveitina Birgir Hansen á bassa, Sölvi Steinn Jónsson á trommur og Sveinbjörn Hafsteinsson á gítar og alls konar hljóðfæri.