
„Ef til þess kæmi að nýtanlegt kerfi væri við Borg kæmi það sér mjög vel. Vatn frá Borg þyrfti ekki að fara um stofnlögn veitunnar frá Deildartunguhver og það myndi bæta mjög orkuöryggi í Borgarnesi að fá heitt vatn úr tveimur áttum.“ Ljósm úr safni/hlh
Hitastigulsfrávik greinist við Borg en hófstilltar væntingar um hita í jörðu
Eins og fram kom í frétt í Skessuhorni í janúar síðastliðnum hafa Veitur verið að kanna með tilraunaborunum hvort hiti gæti leynst í jörðu við Borgarnes. Boraðar hafa verið 60 til 100 metra djúpar holur með það að markmiði að kanna hvort lághitakerfi leynist í berggrunninum við Borg á Mýrum. Landeigandi á viðkomandi svæði auk Borgarbyggðar er Þjóðkirkjan. Gáfu báðir aðilar fúslega leyfi sitt. Borun hefur staðið yfir síðustu vikur og frumniðurstöður gefa ástæðu til hóflegrar bjartsýni.