
Vissara að flokka sorpið rétt og yfirfylla ekki ílátin
Á heimasíðu sveitarfélagsins Borgarbyggðar er nú tilkynning til íbúa og ábending um rétta umgengni við sorpílát. Þar segir: „Á næstu vikum mun Íslenska gámafélagið setja miða á þau sorpílát sem eru ekki með rétt flokkuðum úrgangi og ekki tæma þau ílát. Íbúar munu sjálfir þurfa að koma óflokkuðum úrgangi sínum til móttökustöðvar að Sólbakka 12.“