Það er yfirgefinn bíll út í vegarkanti – og búinn að vera lengi!

„Það er rigning og myrkur og meinlegir skuggar, á Mýrdalssandi og hvergi skjól að fá. Það er yfirgefinn bíll út í vegarkanti og hvergi hræðu neins staðar að sjá...“ Þannig hefst söngtexti í laginu Mýrdalssandur eftir félagana Bubba Morthens og Rúnar Júlíusson. Þessi gamli jepplingur lenti utan vegar á þjóðveginum á móts við Skorholt í Melasveit fyrir meira en mánuði síðan. Liggur að vísu skammt utan við vegarkantinn og úti á túni hjá Baldvin bónda. Jafnt og þétt eru vegfarendur sem taka mynd af þessum bíl, pósta á samfélagsmiðla og undra sig á að hvorki viðkomandi eigandi , tryggingafélag hans eða lögregla láti ekki fjarlægja bílinn. Sumir reyndar láta sér til hugar koma að bíllinn sé látinn liggja þarna öðrum ökumönnum til áminningar um að aka varlega. Meðfylgjandi mynd tók Ari Sigvaldason.

Það er yfirgefinn bíll út í vegarkanti - og búinn að vera lengi! - Skessuhorn