
Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri RML.
Málþing um landbúnað fór fram á Hvanneyri í dag
Í húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri var í dag haldið málþing undir heitinu „Landslagið í landbúnaði og matvælaframleiðslu.“ Þar voru fjölbreytt erindi flutt og að þeim loknum pallborðsumræður þar sem erindin voru rædd. Leitast var við að svara spurningunni; er þörf á að ýta við málum til að landbúnaður geti verið arðsöm atvinnugrein sem sóst er eftir að starfa í? Fundarstjórn var í höndum Hlédísar Sveinsdóttur og voru umræður líflegar og uppbyggjandi.