
Mæðrastyrksnefnd stefnir að páskaúthlutun
Fengu 120 páskaegg að gjöf frá Andreu
Mæðrastyrksnefnd Akraness stefnir á páskaúthlutun í dymbilvikunni. Að þessu sinni verður ekki úthlutað mat heldur eingöngu úttektarkortum í matvöruverslunum, auk páskaeggja. Andrea Þ. Björnsdóttir færði í dag Mæðrastyrksnefnd 120 Góu páskaegg sem nefndin síðan úthlutar áfram til skjólstæðinga sinna. Andrea safnaði fyrir páskaeggjunum með sölu á varningi í Bónus og öðrum styrkjum sem hún safnar. Þær María Ólafsdóttir og Ingunn Hallgrímsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd tóku við gjöfinni.
Að sögn Maríu Ólafsdóttur hjá Mæðrastyrksnefnd Akraness er stefnt að úthlutun úttektarkorta fyrir páska, en upphæð á þeim fer eftir inneign nefndarinnar þegar að úthlutun kemur. María vill biðla til þeirra sem vilja leggja söfnuninni lið að styðja við nefndina.
Styrktarreikningur Mæðrastyrksnefndar Akraness er: 0552-14-402048 og kennitalan 411276-0829.