Horft yfir salinn. Í pallborði eru Laufey fundarstjóri, Ólafur lögfræðingur og Nellý fundarboðandi og eyjabóndi. Ljósmyndir: hig

Eyjabændur fengu svör við ýmsum álitamálum

Haldinn var upplýsandi fundur í félagsheimilinu Lyngbrekku síðdegis í gær, þar sem eyjabændur úr héraðinu komu saman og náðu að stilla strengi með Ólafi Björnssyni lögfræðingi. Ólafur sat fyrir svörum ásamt því sem hann upplýsti um feril málsins hvar fjármálaráðherra hefur gert kröfu fyrir hönd ríkisins í eyjar, hólma og sker. Einnig ræddi hann hvernig staða málsins er nú, en það hefur kvisast frá stjórnarheimilinu að ríkið muni hugsanlega draga kröfur sínar til baka.

Eyjabændur fengu svör við ýmsum álitamálum - Skessuhorn