Svipmynd frá verðlaunaafhendingu í ungmennaflokki. Ljósm. aðsend

Keppt í tölti á KB mótaröðinni

Keppt var í tölti á KB mótaröðinni í hestaíþróttum sl. sunnudag. Það er hestamannafélagið Borgfirðingur sem heldur mótið í Faxaborg og voru ágætar skráningar á það, góð stemning og sömuleiðis vel mætt á pallana. „KB mótaröðin er styrkt af Kaupfélagi Borgfirðinga og þökkum við þeim enn og aftur fyrir stuðningin því þessi mótaröð væri ekki án stuðnings fyrirtækisins,“ segir í tilkynningu.

Keppt í tölti á KB mótaröðinni - Skessuhorn