Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj

Kallað eftir skýringum á að óviðunandi ástand skapaðist

"Það er óviðunandi að öryggi í fjarskiptum standi á slíkum brauðfótum að nokkurra klukkustunda rafmagnsleysi í góðu veðri valdi langvarandi þjónusturofi í byggð,“ segir í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar frá því í síðustu viku. Þar er vísað til að dagana 15. - 16. febrúar varð langvinnt og víðfeðmt rafmagnsleysi í stórum hluta sveitarfélagsins.

Kallað eftir skýringum á að óviðunandi ástand skapaðist - Skessuhorn