
Óvenjulega stór og flókin bilun í dreifikerfi rafmagns
Enn eru nokkur svæði á sunnanverðu Vesturlandi án rafmagns eftir röð bilana sem hófst síðdegis í gær. Að sögn Gísla Ólafssonar, sem er yfir stjórnstöð Rarik, urðu síðdegis í gær nokkrar bilanir sem rekja má til þess að högg kom á dreifikerfið út frá tengistöðinni á Vatnshömrum í Andakíl. Voru þessar bilanir til dæmis á leiðinni frá Ferjubakka og vestur á Mýrar, þannig að Mýralína hefur verið úti síðan laust fyrir klukkan 17 í gær. Þá varð einnig bilun í dreifileiðinni upp í Reykholtsdal og var svæðið frá Lundarreykjadal og að Hvítársíðu að Húsafelli án rafmagns í gærkvöldi. Enn er rafmagnslaust í Lundarreykjadal, á hluta Bæjarsveitar og neðanverðum Reykholtsdal auk nokkurra bæja næst Vatnshömrum.
Gísli segir að búið sé að skipta út búnaði á dreifileiðum sem biluðu en enn sé verið að leita að síðustu bilunum. Starfsmenn Rarik hafa unnið látlaust við bilanaleit og viðgerðir frá því síðdegis í gær en vaktaskipti urðu klukkan 6 í morgun. „Þetta er óvenjulega stór og flókin bilun sem verður á nokkrum stöðum í einu og veldur því að nokkur svæði eru án rafmagns í langan tíma,“ segir Gísli. Hann bindur þó vonir við að lokið verði við viðgerðir fljótlega. Ekki liggur fyrir hvað olli bilununum, en þó benda bændur á Mýrum á að seltu hefði orðið vart í gær. Veður var þó stillt og kvaðst Gísli Ólafsson ekki sannfærður um að rekja megi þessa röð rafmagnsbilana til seltu.
„Bilanaleit hefur verið mjög krefjandi og tímafrek og stendur enn yfir. Sjö bilanir hafa fundist þar af fimm ónýtir dreifispennar og standa viðgerðir yfir á þeim. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur. Í bilanaleitinni getur rafmagn verið að koma inn og fara út til skiptis. Nánari upplýsingar um stöðu mála má finna á tilkynningasíðu og í kortasjá á www.rarik.is,“ sagði í tilkynningu sem var að berast frá Rarik klukkan 10:15.