Þau Birgir Leifur Bjarnason, Bjarki Hjálmarsson og Valeria Gomez voru kát er ljósmyndari rakst á þau. Ljósmyndir: tfk

Öskudagur í Grundarfirði

Að venju var mikið fjör á öskudaginn í Grundarfirði sem víðar. Foreldrafélag Grunnskólans stóð fyrir fjöri í íþróttahúsinu þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni af hinum ýmsu kynjaverum. Svo eftir að hefðbundnu skólahaldi lauk fóru nemendur í leiðangur um bæinn til að gleðja fyrirtækjaeigendur og starfsmenn með söng og gleði. Að venju var þeim launað með smá góðgæti í pokana sem sumir voru orðnir ansi bólgnir eftir daginn.

Öskudagur í Grundarfirði - Skessuhorn