Brákarey í Borgarnesi er meðal þúsunda eyja og skerja sem Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra hefur gert kröfu til fyrir hönd ríkisins.

Krefjast þess að fjármálaráðherra dragi kröfugerðina til baka

„Kröfulýsing ríkisins um þjóðlendumörk er ná til eyja og skerja eru gríðarleg vonbrigði,“ segir í ályktun sem byggðarráð Borgarbyggðar var að samþykkja. „Kröfulýsingin er gríðarstórt inngrip í mat á eignarrétti og framtíðarsýn fjölmargra íbúa í Borgarbyggð og landeigenda um land allt. Þau gögn sem lögð hafa verið fram gefa að mati byggðarráðs Borgarbyggðar alls ekki tilefni til jafn víðtækrar kröfulýsingar og raun ber vitni. Svo langt er gengið að meira að segja er gerð kröfulýsing til Brákareyjar sem megnið af 20. öld var þungamiðja atvinnulífs í Borgarnesi og hefur verið tengd Borgarnesi með brú svo lengi sem elstu menn muna. Hún er jafn samofin byggð í Borgarnesi og Skallagrímsgarður, Hyrnutorg eða Englendingavík.“

Krefjast þess að fjármálaráðherra dragi kröfugerðina til baka - Skessuhorn