Einarslón á vestanverðu Snæfellsnesi er einstakur staður með fjölda minja. Sumar eru farnar að falla fram af bjargbrúninni, eins og þessi sem sést á myndinni. Ljósm. úr safni

Íslensk strandmenning til umfjöllunar á ráðstefnu á Akranesi

Mánudaginn 4. mars stendur Vitafélagið-íslensk strandmenning fyrir málþingi í Tónlistarskólanum á Akranesi. Vitafélagið – íslensk strandmenning var stofnað árið 2003 og er um að ræða frjáls félagasamtök sem telja á þriðja hundrað félaga. Félagið hefur haft það að meginmarkmiði að efla vitund Íslendinga um þau miklu menningarverðmæti sem liggja í og við strendur landsins, aðstoða við uppbyggingu strandmenningar, skapa tengsl og efla samstarf við frjáls félagasamtök á Norðurlöndum sem vinna að eflingu strandmenningar. Strandmenning er nýyrði sem Vitafélagið hefur kynnt og lagt áherslu á í allri sinni starfsemi.

Á ráðstefnunni verður staða og framtíð íslenskrar strandmenningar til umræðu, en málþingsstjóri verður Sigmundur Ernir Rúnarsson. Fjölmörg erindi verða flutt auk pallborðs. Ráðstefnan stendur yfir frá klukkan 13.-17:30. Áhugasamir geta kynnt sér dagskrá ráðstefnunnar á heilsíðuauglýsingu í síðasta Skessuhorni, en einnig hér að neðan. Skráning er á: http://vitafelagid.is

Íslensk strandmenning til umfjöllunar á ráðstefnu á Akranesi - Skessuhorn